Entry: Sko Kristínu okkar!!:) Wednesday, October 11, 2006



af or.is:

OR styrkir fimm konur til náms í iðn- og verkfræði.

Fimm konur hlutu í dag námsstyrki Orkuveitu Reykjavíkur, en styrkveitingarnar eru liður í jafnréttisáætlun Orkuveitunnar. Þetta er tíunda árið sem Orkuveitan styrkir konur sem stunda nám í verk- og tæknifræðigreinum og fjórða árið sem styrkveitingarnar ná einnig til kvenna í ákveðnum iðngreinum.

Styrkþegar í ár eru Hildur Einarsdóttir, nemi í rafmagns – og tölvunarverkfræði við Háskóla Íslands, Arna Vigdís Jónsdóttir, nemi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands, Kristín Steingrímsdóttir, nemi í vélaverkfræði við Háskóla Íslands og Úrsúla Ögn Guðnadóttir, nemi í verk- og tæknifræði við Syddansk Universitet í Sönderborg í Danmörku. Þá hlýtur Steinunn Harpa Einarsdóttir, nemi á vélstjórnarsviði Fjöltækniskóla Íslands, einnig styrk. Heildarupphæð námsstyrkja til kvenna nemur einni milljón króna að þessu sinni.

 

Til lukku með þetta enn og aftur Kristín og sjáumst allar á föstudaginnWink

   2 comments

Þóra
October 12, 2006   06:43 PM PDT
 
Tekur þig vel út á myndinni stelpa! Til hamingju aftur ;)
Auf1
October 12, 2006   12:29 PM PDT
 
Til hamingju!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments