|
Jæja stelpur, kominn tími til að blása lífi í þetta blogg. Orðið á götunni er að Octoberfest sé næstu helgi og liggur leið Shaggara á matsölustað nokkur, er kenndur er við hressleika. Það er skyldumæting í bandý klukkan hálf tvö. Eftir bandý er frjáls tími til fimm, en þá hefst snæðingur. Setningin á götunni er svo að Jóhanna, a.k.a. jog3, a.k.a. Séra Jóhanna af Örk, á afmæli (eldgömul stelpan, meira að segja jafn gömul og Þóra ;). Hún ætlar að bjóða til veislu í Hlíðunum þar sem við munum að sjálfsögðu fjölmenna. Eftir það liggur leið að stóra tjaldinu hjá Háskólanum. Þar hefst aftur frjáls tími sem verður út kvöldið ;) Svo vil ég sjá komment frá ykkur... KOMA SVO, TEAM SHAGGS!!
|
| Heiðbjört October 11, 2006 04:32 PM PDT Alright hrukkulínur... ég sé ykkur í tjaldinu hress og kát... og ég vona að Jóhanna hafi notið afmælisgjafarinnar sem ég gaf henni.. ;) SJÁUMST MEÐ MOTTU ;) | ||
| Guðrún Ben October 11, 2006 12:07 PM PDT Verð líka að segja ykkur frá þvíað ég fékk í skóinn frá steina seinsat svona anty hrukkukrem í kringum munn og augu, mér fannst það snilld, samt er þetta í línu fyrir ungar konur, ég sprakk úr hlátri:) Gleymi alltaf að nota það en ég heyri að ég verðað fara að drífa mig að nota þetta. | ||
| Guðrún Ben October 11, 2006 12:04 PM PDT hæ skvísur, ég heyriað það er nóg að gera, gangi ykkur vel með þetta. Ég kem allavegana og hitti ykkur í tjaldinu. ´Eg er að fara með vinum hans steina og hitti ykur þar. Góða ferð Maggý og njóttu núðlanna:) | ||
| Lára María October 10, 2006 11:39 PM PDT Til í þetta allt saman.. og bandýið líka ef öll skilaverkefni verða búin:) ..Góða ferð Maggý til Shanghai;) | ||
| Kristín October 10, 2006 11:08 PM PDT Það er bara vísindaferðatími á þessum snæðingi! En þetta verður dúndurkvöldstund og skyldumæting í bjórinn og alles. Hvernig er það, á að reyna safna upp í stelpulið í bandý á föstudaginn? | ||
| Elín Birna October 10, 2006 10:32 PM PDT Já þessir ellismellir, eins gott að þú byrjir að bera á þig hrukkukremið Þóra... :) Annars er ég alveg pottþétt geim á föstudaginn, eftir bandý!!! | ||
| Maggý October 10, 2006 10:19 PM PDT jahá komin tími á að ég skelli einhverju hérna inn. ég verð víst að missa af Októberfestinu. Ég heimta samt Shaggs-hitting fljótlega eftir að ég kem til baka!!! Stuðkveðjur þangað til! | ||
| Þóra October 10, 2006 10:10 PM PDT JÁ! Takk fyrir þetta Auður. Bíddu bara þar til þú verður svona gömur, eftir EITT ÁR!!! Ætli maður éti og drekki ekki bara sorgum sínum á Hressó og í tjaldinu á föstud. (afsakið beiskjuna en þetta er fyrsta kvöldstundin mín í VRII á þessari önn) Þetta verður dúndur, jafnvel fyrir gamla fólkið. | ||
| Leave a Comment: |